Fara í efni

Frjálst Skopp

Fullt af fjöri

Frjálst hopp í Skopp veitir aðgang að öllum trampólínum og leiktækjum stóra garðsins þar sem þú getur sleppt þér lausum og skoppað veggjanna á milli – já, þú getur bókstaflega skoppað á veggjunum!

Frjálst hopp er tilvalið fyrir einstaklinga, fjölskyldur og vinahópa sem vilja skemmtilega tilbreytingu í hreyfingu og fullt af fjöri saman.

Þú getur valið að skoppa í 60, 90 eða 120 mínútur.

🎮 Viltu meira fjör? Bættu Pixel við!

Eftir hoppið geturðu skorað á vini eða fjölskyldu í Pixel – gagnvirkum leikjum þar sem þið keppið, vinnið saman og reynið á hraða og útsjónarsemi.

Hægt er að bæta við 15 eða 30 mínútum í Pixel á sérstöku pakkaverði með hoppmiðanum. 

ATH. Eingöngu er hægt að bóka Pixel gegnum email sala@skoppisland.is, símleiðis eða á staðnum. 

Aldurstakmark: Frjálst hopp er fyrir 4 ára og eldri (miðað er við afmælisdag). Börn 4–5 ára þurfa að vera í fylgd með forráðamanni í garðinum allan hopptímann. Bæði börn og fylgdaraðilar þurfa að vera í Skopp sokkum.