NÝTT! Kareókíherbergi fyrir hópinn þinn🎤
KAREÓKÍ Í SKOPP 🎤🎉
Safnaðu hópnum saman, gríptu hljóðnemann og láttu ljós þitt skína!
Kareókíherbergið í Skopp er tilvalið fyrir vinahópinn, fjölskylduna, vinnufélagana eða partýið. Veljið uppáhaldslögin, takið hljóðnemann og syngið af hjartans lyst – hér þarf enginn að vera söngstjarna til að stela senunni!
Herbergið rúmar allt að 20 manns og er bókað sérstaklega fyrir þinn hóp.
🎤 60 MÍNÚTUR – 9.999 KR.
Fyrir allt að 20 manns
GERÐU MEIRA ÚR FJÖRINU!
Af hverju að láta kareókíið eitt duga?
🤸 Hoppið fyrst
Byrjið fjörið á trampólínunum áður en þið grípið hljóðnemana.
🎮 Prófið Pixel
Skorið á hvert annað í gagnvirkum leikjum þar sem hraði, samvinna og keppnisskap fá að njóta sín.
🍕 Pizzaveisla
Bætið pizzum við bókunina og gerið heimsóknina að heilli upplifun.
Hopp + Pixel + Kareókí + pizzaveisla – allt á einum stað!
KAREÓKÍ ER TILVALIÐ FYRIR
- Vinahópa
- Fjölskyldur
- Afmæli
- Starfsmannahópa
- Steggja- og gæsapartý
- Og alla sem elska að syngja!
🍻 Bjór í kareókí
Hægt er að panta bjór í kareókíherbergið fyrir gesti 20 ára og eldri þegar kareókí er bókað eftir lokun garðsins.
BÓKAÐU KAREÓKÍ 🎶
Sendu okkur póst á sala@skoppisland.is til að bóka kareókí eða fá aðstoð við að setja saman hopp, Pixel, kareókí og veitingar fyrir hópinn.
Pöntunum sem berast eftir kl. 16:00 er svarað næsta virka dag. Berist pöntun eftir kl. 16:00 á föstudegi verður henni svarað á mánudegi.
Bókun er ekki staðfest fyrr en starfsmaður Skopp hefur sent staðfestingarpóst.