Rush fitness
Rush Fitness er frábært námskeið þar sem markmiðið er alhliða styrktar og þolþjálfun í hinum geysivinsæla Rush trampólíngarði.
Æfingastig eykst með tímanum og geta allir útfært álagið eftir sínum þörfum hverju sinni.
Námskeiðið hentar öllum sem vilja kíkja út fyrir þægindarammann og þjálfa líkamann á skemmtilegri máta á trampólínum ásamt fleiri æfingum í góðum hópi. Einstaklega hentugt fyrir mæður sem vilja styrkja grindarbotninn eftir barnsburð.
Farið verður yfir styrktaræfingar fyrir grindarbotninn, rétta líkamsbeitingu og öryggisatriði á trampólínunum. Engin kunnátta eða reynsla á trampólínum nauðsynleg.
Lærdómsríkt, áhrifaríkt og skemmtilegt námskeið fyrir konur.
Námskeiðið er 4 vikur. Hægt er að kaupa stakann tíma sem fer uppí kort sé þess óskað.
Tímar:
Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl. 19:00-20:00