Fara í efni

Páskanámskeið 2026

Boðið er upp á Páskanámskeið í Skopp dagana 30.mars - 01.apríl, kl.10:00-13:00  🎉

Námskeiðslýsing

Börnin koma og skoppa og leika, fara í klifur, koddaslag, skotboltakeppni og skemmta sér í góðum hópi. 🤸

Mikilvægt að börnin komi með nesti og í léttum og þægilegum fatnaði. Börnin fá Skopp sokka og Skopp bol og allir fá svo skemmtilegan glaðning síðasta daginn 😊

Fyrir hvern?

Fyrir börn 6-12 ára (börn fædd 2014-2019)

Leiðbeinendur

Leiðbeinendur námskeiðanna eru starfsmenn Skopp sem hafa unnið með börnum.

Verð kr. 17.999.-

Skráning hér