BJÓDDU Í HRESSANDI AFMÆLI! 🎉
Gerðu afmælisdaginn að alvöru ævintýri í Skopp! Hjá okkur fá krakkarnir að hoppa, leika og skemmta sér saman – og nú er hægt að gera afmælið enn fjölbreyttara með Pixel og kareókí.
Afmælisgestir mæta 15 mínútum áður en afmælið hefst svo allir séu komnir í Skopp sokkana og tilbúnir þegar fjörið byrjar.
🎈 AFMÆLISPAKKI 1
Hoppp 60 mín
Innifalið:
- 60 mínútna frjálst hopp
- Skopp sokkar
- Pizza – 2 sneiðar á barn
- Safi
- Frostpinni
- Afmælisgjöf frá Skopp fyrir afmælisbarnið
4.699 KR. Á MANN
Lágmarksfjöldi er 10 gestir. Afmælin eru fyrir börn 6 ára og eldri.
🎈 AFMÆLISPAKKI 2
Hoppp 60 mín + Pixel
Bættu Pixel við afmælið og leyfðu krökkunum að prófa gagnvirka leiki þar sem þau spila og keppa saman!

Innifalið:
- 60 mínútna frjálst hopp
- Skopp sokkar
- Pizza – 2 sneiðar á barn
- Safi
- Frostpinni
- Afmælisgjöf frá Skopp fyrir afmælisbarnið
- PIXEL
4.999 KR. Á MANN
🎈 AFMÆLISPAKKI 3
Hoppp 60 mín + Pixel + Kareókí
Fyrir þau sem vilja allt fjörið!

Innifalið:
- 60 mínútna frjálst hopp
- Skopp sokkar
- Pizza – 2 sneiðar á barn
- Safi
- Frostpinni
- Afmælisgjöf frá Skopp fyrir afmælisbarnið
- PIXEL
- Kareókí
5.399 KR. Á MANN
Aðeins einn afmælishópur getur verið í Pixel og kareókí í einu.
ATH. Til að sem flestir afmælishópar geti nýtt sér Pixel skipuleggur starfsfólk Skopp tímasetningu Pixel fyrir hvern hóp út frá lausum tímum þann dag og staðfestir endanlega dagskrá afmælisins í staðfestingarpósti.
VEITINGAR 🍕
Við bjóðum upp á margaritu-, pepperóní- og skinkupizzur.
Hægt er að bæta við auka pizzu fyrir 2.799 kr.
Heimilt er að koma með afmælisköku og annað meðlæti með veitingunum, t.d. ávexti. Ef komið er með köku þarf að koma með gaffla/skeiðar fyrir kökuna.
ATH. Glimmer og sprengiskraut er ekki leyft hjá okkur.
20% AFSLÁTTUR HJÁ PARTYLAND
Þeir sem bóka afmæli í Skopp fá 20% afslátt af afmælisvörum og blöðrum (ekki helium) hjá Partyland í Holtagörðum. Sýna þarf staðfestingarpóst frá Skopp.
BÓKANIR
Frekari upplýsingar um afmælisveislur fást í gegnum tölvupóst á sala@skoppisland.is.
Afmælið er ekki staðfest fyrr en starfsmaður Skopp hefur sent staðfestingarpóst. Við gefum okkur allt að 24–48 klukkustundir til að svara bókunum og fyrirspurnum.
Mikilvægt er að bóka fyrir þann heildarfjölda sem boðið er. Erfitt getur verið að bæta við gestum síðar ef fullt er á veitingarsvæði okkar.
Lokafjölda skal tilkynna í síðasta lagi fyrir hádegi samdægurs ef afmælið er á virkum degi. Fyrir afmæli um helgar skal tilkynna lokafjölda fyrir kl. 16:00 á föstudeginum.