Sumarnámskeið
Sumarnámskeið 2025!
Í boði er leikjahopp námskeið sem samanstendur af frjálsum leik á trampólíni. Farið verður í
ýmsa leiki eins og skotbolta, fótbolta, koddaslag og klifurkeppni. Við leggjum mest upp úr
hópefli, gleði og skemmtun 🙂
Mikilvægt er að börnin komi með nesti og í léttum og
þægilegum fatnaði. Börnin fá Skopp sokka, Skopp bol, Skopp vatnsbrúsa og Skopp svitaband.
Staðsetning:
Námskeiðin fara fram í Skopp, Dalvegi 10-14, Kópavogi
Fyrir hvern?
Fyrir börn 6-12 ára (fædd 2013-2018). Þeim er skipt í tvo hópa: 6-9 ára og 10-12 ára.
Dagsetning og tími:
Námskeiðin eru kennd viku í senn. kl.9:00 - 12:00 og/eða kl.13:00 - 16:00.
10. - 13. júní (4 dagar)
16. – 20. júní (4 dagar)
23. – 27. júní
30.júní – 4. júlí
7. – 11. Júlí
14. – 18. júlí
5. – 8. ágúst (4 dagar)
11 - 15. ágúst
Hvert námskeið kostar kr. 26.999 (4 dagar kr. 21.599) – Veittur er 10% systkinaafsláttur.
Börnin fá ískalt krap að námskeiði loknu 😊
Leiðbeinendur:
Leiðbeinendur okkar eru starfsmenn Skopp sem allir hafa reynslu af vinnu með börnum og námskeiðishaldi.
Frekari upplýsingar um sumarnámskeið má nálgast í gegn um tölvupóst sala@skoppisland.is
Skráning hefst sumardaginn fyrsta 24.apríl 😊Skráning hér